Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026 og nú leitum við að spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára. Við hvetjum einstaklinga, listafólk, hópa, félagasamtök, skóla, stofnanir og aðra skapandi aðila …
Opið fyrir umsóknir í Startup Landið til 1. september
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn Startup Landið sem haldinn verður 24. september til 5. nóvember 2026. Hraðallinn er ætlaður einstaklingum og teymum með nýsköpunarhugmyndir á landsbyggðinni sem vilja þróa þær áfram með markvissri leiðsögn, fræðslu og stuðningi frá reynslumiklum leiðbeinendum og sérfræðingum úr atvinnulífinu. Í Startup Landinu fá þátttakendur tækifæri til að vinna markvisst að sínum verkefnum, móta viðskiptahugmyndir, þróa viðskiptamódel …
Viðvera atvinnuráðgjafa í Hvalfjarðarsveit
Ólöf Guðmundsdóttir, atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), verður með viðveru á Innrimel 3 í Hvalfjarðarsveit, milli klukkan 10:00 til kl. 12:00. Boðið verður upp á samtöl og ráðgjöf fyrir einstaklinga, fyrirtæki og frumkvöðla sem vilja ræða atvinnu-, þróunar- og nýsköpunarverkefni á ýmsum stigum. Fyrirspurnir skal senda á netfangið olof@ssv.is. Ávallt er velkomið að bóka tíma utan auglýsts viðverutíma. …
Viðvera atvinnuráðgjafa á Akranesi
Hrafnhildur Tryggvadóttir og Ólöf Guðmundsdóttir, atvinnuráðgjafar hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), verða með viðveru á Breiðinni á Akranesi, milli klukkan 10:00 til kl. 15:00. Boðið verður upp á samtöl og ráðgjöf fyrir einstaklinga, fyrirtæki og frumkvöðla sem vilja ræða atvinnu-, þróunar- og nýsköpunarverkefni á ýmsum stigum. Hægt er að bóka tíma og senda fyrirspurnir á netföngin hrafnhildur@ssv.is og olof@ssv.is. Einnig er mögulegt …
Viðvera atvinnuráðgjafa á Akranesi
Hrafnhildur Tryggvadóttir og Ólöf Guðmundsdóttir, atvinnuráðgjafar hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), verða með viðveru á Breiðinni á Akranesi í dag til kl. 15:00. Boðið verður upp á samtöl og ráðgjöf fyrir einstaklinga, fyrirtæki og frumkvöðla sem vilja ræða atvinnu-, þróunar- og nýsköpunarverkefni á ýmsum stigum. Hægt er að bóka tíma og senda fyrirspurnir á netföngin hrafnhildur@ssv.is og olof@ssv.is. Einnig …
Samfélagssjóður BYKO
Verkefni sem snúa að sjálfbærni eða að umsækjandi/fyrirtæki/félagasamtök starfi með sjálfbærni að leiðarljósi styrkir stöðu umsóknar þar sem umsækjendur eru hvattir til að að vinna eftir stoðum sjálfbærninnar sem eru umhverfismál, félagsleg mál og stjórnarhættir. Verkefni sem snúa að geðheilbrigði falla einnig vel að og styrkir stöðu umsóknar. Stefnur BYKO má finna hér. BYKO leggur megináherslu á fimm heimsmarkmið: – Jafnrétti …
Samfélagssjóður Landsvirkjunar
Landsvirkjun tekur virkan þátt í samfélaginu og styður við málefni og verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Sjóðurinn styður verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og leggur sérstaka áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif á nærsamfélög fyrirtækisins. Tekið er á móti umsóknum allt árið en úthlutað er úr sjóðnum þrisvar á ári. Umsóknarfrestur er til 31. mars, 31. júlí …
Terra Nýsköpunarstyrkur
Nýsköpunarstyrkir fyrir verkefni sem stuðla að sjálfbærni, hreinni efnisstraumum og aukinni endurnotkun eða endurnýtingu efna. Styrktarstefna Terra Terra vill láta gott af sér leiða og tekur virkan þátt í því samfélagi sem fyrirtækið starfar í og hluti af þeirri þátttöku felst í styrkjum til margvíslegra málefna. Stefna þessi endurspeglar markmið okkar í sjálfbærni og tekur mið af þeim Heimsmarkmiðum Sameinuðu …



