Uppbyggingarsjóður Vesturlands - opið fyrir umsóknir til 22. nóvember
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands Úthlutun janúar 2024
Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.
Í ÞESSARI ÚTHLUTUN ERU: -Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar -Verkefnastyrkir til menningarmála -Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarmála