2026
Snæfellsbær
Margt leynist í fjörunni – 8. október kl 10:20 í Snæfellsjökulsþjóðgarðsmiðstöðinni
Nemendur úr 4.bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar munu sýna „Hvað býr í fjörunni?“ í Snæfellsjökulsþjóðgarðsmiðstöðinni. Áætlaður opnunardagur er fimmtudagur 8.október kl. 10:20. Í verkefninu unnu nemendur með fjöruna og lífríki hennar.
Komdu og skoðaðu í kistuna – frekari upplýsingar á næstunni.
Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla BSH í Norska húsinu Stykkishólmi býður upp á sérstakar safnaheimsóknir skólabarna leik- og grunnskóla á Snæfellsnesi á Barnó.
Öll börn á Snæfellsnesi fá þannig jafna möguleika á að kynnast því sem safnið hefur upp á að bjóða í sögu og menningu Snæfellsness. Sérstakur verkefnastjóri hefur umsjón með heimsóknunum sem hafa það að markmiði að ná til allra barna á Snæfellsnesi ekki síst hópa í viðkvæmri stöðu og íbúum af erlendum uppruna. Heimsókn stendur til boða í Norska húsið í Stykkishólmi en einnig heimsókn verkefnisstjóra í leik- og grunnskóla á Snæfellsnesi, með sérstaka safnakistu, þar sem safngripir verða skoðaðir og safnfræðsla á sér stað. Lagt er upp með að börnin taki beinan þátt í heimsóknum, hvort sem það er heimsókn í Norska húsið eða úti í skólunum.
Veltum fyrir okkur gripum úr safngeymslu eða á sýningum í Norska húsinu: Til hvers eru þeir og hvaðan koma þeir? Hvað er merkilegt að sýna frá Snæfellsnesi? Hvaða safngripi frá Snæfellsnesi vilja krakkar sjá á sýningu? Verður kannski til ný sýning sem krakkar leggja fram hugmyndir um sýningargripi? Hvað er torfbær og eru þeir til á Snæfellsnesi? Hvað er baðstofa og hvað var gert þar? Hvað er Breiðfirskt bátalag? Hvað er safnabingó?
Þessar spurningar leita upp á yfirborðið þegar börn og byggðasafn mætast og með þessum viðburðum er leitast við að Byggðasafn Snæfellinga, með verkefnisstjóra í fararbroddi, komi til barna sem búa á kjarnasvæði þess til að spjalla um safngripi og velta hlutverki þeirra og safnins fyrir sér. Verkefni verða í hverri heimsókn fyrir mismunandi aldurshópa byggð á safnfræðslu, sjón- og myndlæsi og vangaveltum um lífið og tilveruna á Snæfellsnesi fyrr og nú.
Þorgrímur kallaður Snorri – Sunnudagur 1. nóvember í Þjóðgarðsmiðstöð Hellissandi.
Á Snæfellsnesi gerist saga sem kallast Eyrbyggja saga sem var skrifuð um árið 1300.
Snorri goði, Þórólfur Bægifótur, Þuríður Barkardóttir, Berserkirnir Halli og Leiknir, Þórgunna, Björn Breiðvíkingakappi ásamt fleirum eru stórar persónur í þessari sögu sem er Héraðssaga Snæfellsness og ein af Íslendingasögunum.
Nú hefur sagan verið teiknuð upp af Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur og er fólk á Snæfellsnesi að sauma út söguna sem verður alls 27 metrar að lengd. Svona verk kallast myndrefill og hann er í 7 hlutum sem eru geymdir á Breiðabliki, Lýsuhólsskóla, Þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs, Fellaskjóli Grundarfirði, Hraunhálsi í Helgafellssveit og Amtsbókasafninu í Stykkishólmi.
Á þessum stöðum undirbúum við í Eyrbyggjasögufélaginu, að halda viðburði í tengslum við Barnó í október þar sem við skoðum myndasöguna, prófum að taka saumspor í myndasögu, setjum okur í spor víkinga og veltum fyrir okkur hvernig fólk lifði á Víkingaöld og hvað krakkar gerðu á Víkingaöld. Búum til sögur sem gerast á Víkingatíma, skoðum rúnaletur og hver veit nema hægt verði að máta víkingaföt!

Lúðrasveit Stykkishólms – frekari upplýsingar á næstunni.
Pop up tónleikar í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Malarrifi.
Grundarfjörður
Komdu og skoðaðu í kistuna – frekari upplýsingar á næstunni.
Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla BSH í Norska húsinu Stykkishólmi býður upp á sérstakar safnaheimsóknir skólabarna leik- og grunnskóla á Snæfellsnesi á Barnó. Öll börn á Snæfellsnesi fá þannig jafna möguleika á að kynnast því sem safnið hefur upp á að bjóða í sögu og menningu Snæfellsness. Sérstakur verkefnastjóri hefur umsjón með heimsóknunum sem hafa það að markmiði að ná til allra barna á Snæfellsnesi ekki síst hópa í viðkvæmri stöðu og íbúum af erlendum uppruna.
Heimsókn stendur til boða í Norska húsið í Stykkishólmi en einnig heimsókn verkefnisstjóra í leik- og grunnskóla á Snæfellsnesi, með sérstaka safnakistu, þar sem safngripir verða skoðaðir og safnfræðsla á sér stað. Lagt er upp með að börnin taki beinan þátt í heimsóknum, hvort sem það er heimsókn í Norska húsið eða úti í skólunum.
Veltum fyrir okkur gripum úr safngeymslu eða á sýningum í Norska húsinu: Til hvers eru þeir og hvaðan koma þeir? Hvað er merkilegt að sýna frá Snæfellsnesi? Hvaða safngripi frá Snæfellsnesi vilja krakkar sjá á sýningu? Verður kannski til ný sýning sem krakkar leggja fram hugmyndir um sýningargripi? Hvað er torfbær og eru þeir til á Snæfellsnesi? Hvað er baðstofa og hvað var gert þar? Hvað er Breiðfirskt bátalag? Hvað er safnabingó?
Þessar spurningar leita upp á yfirborðið þegar börn og byggðasafn mætast og með þessum viðburðum er leitast við að Byggðasafn Snæfellinga, með verkefnisstjóra í fararbroddi, komi til barna sem búa á kjarnasvæði þess til að spjalla um safngripi og velta hlutverki þeirra og safnins fyrir sér. Verkefni verða í hverri heimsókn fyrir mismunandi aldurshópa byggð á safnfræðslu, sjón- og myndlæsi og vangaveltum um lífið og tilveruna á Snæfellsnesi fyrr og nú.
Þeir sem standa fyrir þessu verkefni eru: Einir Hugi, Þorkell Máni og Guðbrandur Gunnar.
Vikan hefst í Tónlistarskóla Grundarfjarðar. Linda María tónlistarskólastjóri setur hátíðina og nemendur flytja nokkur rokkuð atriði.
Ungir listamenn bjóða gestum og gangandi upp á rokkgjörninga hér og þar. Fleiri eru hvattir til að taka þátt.
Skráning hjá Gunna: gunninn67@gmail.com eða Helgu Sjöfn hjá Grundarfjarðarbæ. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
Rokkað úti á hól. Nemendur Leikskólans verða með þrusurokkatriði á miðbæjartorginu.
Föstudagur 9. október – kl. 18:00
Rokk sungið í Þríhyrningnum af Grundfirskum Rokk Krökkum.
Rokktónleikar í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Fram koma Djassband frá Tónlistarskóla Sth., Dirt Talent Extrackt, Noise Gate og Bergmenn. Frítt inn, en tekið verður við frjálsum framlögum í ferðasjóð ungu bandmeðlimanna sem koma víðs vegar að til að rokka fyrir og með okkur.
Smári Tarfur, tónlistarmaður, mætir með gítar eða tvo, segir frá og gefur góð ráð. Einnig kemur fram Krakka-rökkur-rokk-kór undir stjórn Grétu með undirspili RökkurRokk-hljómsveitar viðburðarins.

Hrekkjuvakan í Grundó – 28.október til 31. október í Grundarfirði.

Stykkishólmur
Komdu og skoðaðu í kistuna – frekari upplýsingar á næstunni.
Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla BSH í Norska húsinu Stykkishólmi býður upp á sérstakar safnaheimsóknir skólabarna leik- og grunnskóla á Snæfellsnesi á Barnó.
Öll börn á Snæfellsnesi fá þannig jafna möguleika á að kynnast því sem safnið hefur upp á að bjóða í sögu og menningu Snæfellsness. Sérstakur verkefnastjóri hefur umsjón með heimsóknunum sem hafa það að markmiði að ná til allra barna á Snæfellsnesi ekki síst hópa í viðkvæmri stöðu og íbúum af erlendum uppruna. Heimsókn stendur til boða í Norska húsið í Stykkishólmi en einnig heimsókn verkefnisstjóra í leik- og grunnskóla á Snæfellsnesi, með sérstaka safnakistu, þar sem safngripir verða skoðaðir og safnfræðsla á sér stað. Lagt er upp með að börnin taki beinan þátt í heimsóknum, hvort sem það er heimsókn í Norska húsið eða úti í skólunum.
Veltum fyrir okkur gripum úr safngeymslu eða á sýningum í Norska húsinu: Til hvers eru þeir og hvaðan koma þeir? Hvað er merkilegt að sýna frá Snæfellsnesi? Hvaða safngripi frá Snæfellsnesi vilja krakkar sjá á sýningu? Verður kannski til ný sýning sem krakkar leggja fram hugmyndir um sýningargripi? Hvað er torfbær og eru þeir til á Snæfellsnesi? Hvað er baðstofa og hvað var gert þar? Hvað er Breiðfirskt bátalag? Hvað er safnabingó?
Þessar spurningar leita upp á yfirborðið þegar börn og byggðasafn mætast og með þessum viðburðum er leitast við að Byggðasafn Snæfellinga, með verkefnisstjóra í fararbroddi, komi til barna sem búa á kjarnasvæði þess til að spjalla um safngripi og velta hlutverki þeirra og safnins fyrir sér. Verkefni verða í hverri heimsókn fyrir mismunandi aldurshópa byggð á safnfræðslu, sjón- og myndlæsi og vangaveltum um lífið og tilveruna á Snæfellsnesi fyrr og nú.
Sirkus sýning og sirkus smiðja – frekari upplýsingar á næstunni.
Á Barnó 2026 verður boðið upp á sirkus sýningu og sirkus smiðju í Stykkishólmi. Það er Hringleikur sem mun koma með sýninguna en Hringleikur er sirkuslistafélag sem vinnur að því að byggja upp og styrkja sirkusmenningu á Íslandi með uppsetningu fjölbreyttra sirkussýninga, námskeiðshaldi og sirkusiðkun fyrir sirkusfólk. Hringleikur er íslenskt sirkuslistafélag sem hyggst efla íslenska sirkusmenningu. Meðlimir félagsins stunda allir sirkuslistir og starfa við þær í einhverjum mæli. Hringleikur stendur að framleiðslu sirkussýninga á Íslandi, og auk þess rekur hann sirkusstarfsemi fyrir börn og unglinga: Æskusirkusinn. Byrjað verður á því að vera með sýningu og í kjölfar hennar verður boðið upp á smiðju þar sem börn fá að prófa ýmis sirkusáhöld, eins og snúningsdiska, húllahringi og fleira.
Skartgripagerð – Laugardagur 10. október. Frá 10.00-13.00 og frá klukkan 13.30-17.00. Grunnskólanum í Stykkishólmi.
DalaMey, er fjölskyldusmiðja og samanstendur af hjónunum Sigríði Jónu Eggertsdóttur og Lýð Pálma Viktorssyni ásamt dótturinni Sigurdísi Sóley og vinnum við saman í Hörðudal í Dalabyggð. Við erum aðallega að vinna með horn. Gerum skartskripi, tölur og lyklakippur úr þeim efnivið. Látum sniðin á horninu leiða okkur áfram hvað við viljum fá út úr þeim hverju sinni. Því ekkert horn er eins, hægt væri að segja að þau séu eins og fingrafar okkar manna.

Bangsasögustund og bangsagisting – Þriðjudagur 27. október. Klukkan 17:10 á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi.
Bangsadagurinn er haldinn hátíðlegur í lok október. Af því tilefni ætlum við að hafa bangsasögustund. Að henni lokinni geta hugrakkir bangsar fengið að gista á bókasafninu og kynnast því hvað gerist þar þegar enginn sér til.
Fyrir og eftir sögustundina verður hægt að lita bangsamyndir og hafa það notalegt á safninu. Safnið verður opið frá 14 til 18.

Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna. Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.
Að sýningu lokinni verður opið sirkusnámskeið – dótakassi með ýmsum sirkusáhöldum sem gestum og gangandi er frjálst að prófa. Sirkuslistafólk Hringleiks kennir lauflétta smiðju þar sem má stoppa við í styttri eða lengri tíma á meðan á smiðjunni stendur. Stór og smá geta hér leikið sér saman og lært ýmist að djöggla, snúa diskum eða að ná jafnvægi á veltibretti. Öll velkomin.

Eyja- og Miklaholtshreppur

Komdu og skoðaðu í kistuna – frekari upplýsingar á næstunni.
Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla BSH í Norska húsinu Stykkishólmi býður upp á sérstakar safnaheimsóknir skólabarna leik- og grunnskóla á Snæfellsnesi á Barnó.
Öll börn á Snæfellsnesi fá þannig jafna möguleika á að kynnast því sem safnið hefur upp á að bjóða í sögu og menningu Snæfellsness. Sérstakur verkefnastjóri hefur umsjón með heimsóknunum sem hafa það að markmiði að ná til allra barna á Snæfellsnesi ekki síst hópa í viðkvæmri stöðu og íbúum af erlendum uppruna. Heimsókn stendur til boða í Norska húsið í Stykkishólmi en einnig heimsókn verkefnisstjóra í leik- og grunnskóla á Snæfellsnesi, með sérstaka safnakistu, þar sem safngripir verða skoðaðir og safnfræðsla á sér stað. Lagt er upp með að börnin taki beinan þátt í heimsóknum, hvort sem það er heimsókn í Norska húsið eða úti í skólunum.
Veltum fyrir okkur gripum úr safngeymslu eða á sýningum í Norska húsinu: Til hvers eru þeir og hvaðan koma þeir? Hvað er merkilegt að sýna frá Snæfellsnesi? Hvaða safngripi frá Snæfellsnesi vilja krakkar sjá á sýningu? Verður kannski til ný sýning sem krakkar leggja fram hugmyndir um sýningargripi? Hvað er torfbær og eru þeir til á Snæfellsnesi? Hvað er baðstofa og hvað var gert þar? Hvað er Breiðfirskt bátalag? Hvað er safnabingó?
Þessar spurningar leita upp á yfirborðið þegar börn og byggðasafn mætast og með þessum viðburðum er leitast við að Byggðasafn Snæfellinga, með verkefnisstjóra í fararbroddi, komi til barna sem búa á kjarnasvæði þess til að spjalla um safngripi og velta hlutverki þeirra og safnins fyrir sér. Verkefni verða í hverri heimsókn fyrir mismunandi aldurshópa byggð á safnfræðslu, sjón- og myndlæsi og vangaveltum um lífið og tilveruna á Snæfellsnesi fyrr og nú.
2025
Stykkishólmur

Bókaútgáfusmiðja Mörtu! – 1. nóvember kl 13:00 í Amtsbókasafninu Stykkishólmi

Tilkynnt innan tíðar! –Stjörnu Sævar og sólmyrkvinn – Fyrirlestur Stjörnu-Sævars
Tilkynnt innan tíðar! –Ljósagull Húlladúllunnar – Töfrandi sýning
Tilkynnt innan tíðar! –Gerðu þinn eigin húllahring með Húlladúllunni – Húllahringjagerð
Tilkynnt innan tíðar! –Með vindinum liggur leiðin heim – Brúðulistasýning Handbendis
Tilkynnt innan tíðar! –Brúðusmiðja Handbendis – Hvernig verður brúða til?
Grundarfjarðarbær
Tilkynnt innan tíðar! –Bókaútgáfusmiðja Mörtu – Hvernig verður barnabók til?
Tilkynnt innan tíðar! –Listsýning á Sólvöllum – Verk leikskólabarna

Taktur og texti – 17. október klukkan 18:30-21:00 (8.-10. bekkur) 18. október klukkan 9:30-12 (1. bekkur) 13:30-15:00 (5.-7. bekkur) í Sögumiðstöðinni
Stórskemmtileg tónlistarsmiðja með Steinunni og Kela þar sem þátttakendur semja lag og texta. Öll börn hjartanlega velkomin!

Hringleikur: Shjówmenn – 27. október klukkan 14:00, Íþróttahúsinu
Glænýja tveggja manna sirkussýning sem heitir Shjówmenn og fjallar um tvo trúða að takast á við lífið á sjó í gegnum sirkuslistir. Látið ekki þessa stórkostlegu sýningu framhjá ykkur fara!

Bókaútgáfusmiðja Mörtu! – 1. nóvember kl 16:00 í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði

Búkolla á norðurslóðum – 12. nóvember í Samkomuhúsinu í Grundarfirði klukkan 11:00
Flestir þekkja þjóðsöguna um Búkollu, úr í safni Jóns Árnasonar. Á þessum tónleikum er sagan sögð sem tónlistarævintýri en Gunnar Andreas Kristinsson hefur skapað heillandi hljóðheim þar sem helstu persónur sögunnar eiga sín eigin stef og tónlistin er einnig lýsandi fyrir áskoranir Karlssonar og Búkollu, s.s. fjallið sem enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi, móðuna miklu og bálið stóra. Sagan er sögð af fjórum hljóðfæraleikurum og sögumanni, auk stjórnanda, en samtímis birtast skemmtilegar myndskreytingar Böðvars Leós á skjá. Öll velkomin!
Snæfellsbær

Tröllasmiðja – 26. október klukkan 15:00 í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi
Í tilefni af Barnamenningarhátíð Vesturlands bjóðum við börnum og fjölskyldum að koma í Þjóðgarðsmiðstöðina og búa til TRÖLL úr náttúrulegum efnum!Viðburðurinn er opin öllum og ókeypis en eftir föndrið og sögustundina er kjörið að fá sér kaffi og bita á kaffihúsinu Elju. Viðburðurinn á Facebook

Hringleikur: Shjówmenn – 28. október kl 17 í Félagsheimilinu Klifi
Glænýja tveggja manna sirkussýningu sem heitir Shjówmenn og fjallar um tvo trúða að takast á við lífið á sjó í gegnum sirkuslistir. Látið ekki þessa stórkostlegu sýningu framhjá ykkur fara!

Leitin að regnboganum – 29. október, klukkan 16-18 í Félagsheimilinu Klifi
Leitin að regnboganum er dans- og tónlistarsmiðja þar sem börn á aldrinum 2 – 6 ára fara í ferðalag með litunum í leit að regnboganum – hver litur stendur fyrir dyggð eins og hugrekki, virðingu, hjálpsemi og þakklæti, þannig að ekki er aðeins von er á miklu ævintýri! Viðburður á Facebook.

Litadýrð jökulsins – Vegglistasmiðja – 29. október kl. 16:30-18:00, 30. október kl. 14.30-16.30 og 31. október kl 13:00-15:00 í Félagsmiðstöðinni Afdrepi
Listasmiðja í Afdrepi þar sem litadýrð jökulsins er færð á veggi húsnæðisins.

Tónlistarsmiðja – 29. október, kl 16:30-18:00, 31. október kl 14:30-16:30 og 1. nóvember kl 13:00-15:00 í Félagsmiðstöðinni Afdrepi
Þátttakendur á aldrinum 12-16 fá að spreyta sig í spennandi tónlistarsmiðju!

Hrekkjavaka í Pakkhúsinu – 30. október frá klukkan 16-18 í Gamla Pakkhúsinu
Menningarnefnd Snæfellsbæjar og Smiðjan höndum saman og umbreyta Pakkhúsinu í sannkallaðan draugabæ! Viðburður á Facebook.

Bókaútgáfusmiðja Mörtu! – 2. nóvember kl 13:00 í félagsmiðstöðinni Afdrepi Hellissandi
Tilkynnt innan tíðar! –Bókaútgáfusmiðja Mörtu – Hvernig verður barnabók til?
Tilkynnt innan tíðar! –Leitin að regnboganum – Dans- og tónlistarsmiðja fyrir 2–6 ára
Tilkynnt innan tíðar! –Ljósagull og eldlistasýning – Húlladúllan
Tilkynnt innan tíðar! –Sirkussmakk Húlladúllunnar – Smiðja í sirkuslistum

Búkolla á norðurslóðum – 12. nóvember í Lýsuhólsskóla klukkan 13:30