2026

Íslensk glíma – frekari upplýsingar þegar nær dregur.

Börn fá tækifæri til að kynnast íslenskri glímu, sögu hennar og arfleið. Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að þekkja þjóðaríþrótt Íslendinga, glímuna, vegna þess að hún er mikilvægur hluti af íslenskri menningu og sögu. Með því að læra um glímuna kynnast þau gömlum íslenskum hefðum og fá betri skilning á því hvernig fólk á Íslandi lifði og stundaði íþróttir áður fyrr. Eða notaði ýmis tök hennar í sjálfsvörn eins og hægt er að lesa úr Íslendingasögunum.  Glíma getur einnig kennt börnum og ungmennum virðingu, aga, þrautseigju og sanngirni. Hún tengir þannig saman íþróttir og menningararf.

Skartgripagerð -Þriðjudagur 6. október. Klukkan 16.00 í Auðarskóla.

Látum sniðin á horninu leiða okkur áfram hvernig hálsmenið mun verða. Því ekkert horn er eins, hægt væri að segja eins og fingrafar okkar manna.

Aðeins 5 komast að á hvert námskeið.

Skráning fer fram á sigurdis89@gmail.com

Ath. ef einstaklingur er með öndunarfærasjúkdóm er ekki mælt með þessu námskeiði.

DalaMey, er fjölskyldusmiðja og samanstendur af hjónunum Sigríði Jónu Eggertsdóttur og Lýð Pálma Viktorssyni ásamt dótturinni Sigurdísi Sóley og vinnum við saman í Hörðudal í Dalabyggð. Við erum aðallega að vinna með horn. Gerum skartskripi, tölur og lyklakippur úr þeim efnivið. Látum sniðin á horninu leiða okkur áfram hvað við viljum fá út úr þeim hverju sinni. Því ekkert horn er eins, hægt væri að segja að þau séu eins og fingrafar okkar manna.

Musical stories – frekari upplýsingar þegar nær dregur.

Spiluð er tónlist á framandi hljóðfæri og í kjölfarið eru umræður um söguna í tónlistinni. Krakkarnir munu svo skrifa söguna sem þau finna. Sagan er líka myndskreytt.

Hringleikur – Shjówmenn – Laugardagur 10. október. Klukkan 14.00 í íþróttahúsinu á Laugum í Sælingsdal.

Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna. Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.

Að sýningu lokinni verður opið sirkusnámskeið – dótakassi með ýmsum sirkusáhöldum sem gestum og gangandi er frjálst að prófa. Sirkuslistafólk Hringleiks kennir lauflétta smiðju þar sem má stoppa við í styttri eða lengri tíma á meðan á smiðjunni stendur. Stór og smá geta hér leikið sér saman og lært ýmist að djöggla, snúa diskum eða að ná jafnvægi á veltibretti. Öll velkomin.

Circusland – frekari upplýsingar þegar nær dregur.

Viðburðurinn samanstendur af fjórum vinnustofum sem fara fram dagana 1.–9. október. Vinnustofurnar ná yfir þrjár ólíkar greinar sirkuslista og eina grein danslistar:

  • Djögglvinnustofa – boltagerð og tæknileg undirstöðuatriði.
  • Líkamlegt leikhús – unnið með líkamann sem verkfæri til tjáningar og frásagnar.
  • Mjúkar akróbatískar hreyfingar – byggðar á aðferðum Flying Low og Animal Flow.
  • Samtímadans – skapandi vinna með hreyfingu og líkama.

Leiðbeinandi verkefnisins er Carla Maeso Mota, sem hefur 10 ára reynslu af sirkuslistum og hefur stundað nám við tvo evrópska háskóla á sviði sirkuslista, með áherslu á samtímasirkus og þverfaglega sviðslistasköpun.

Hver vinnustofa stendur yfir í tvær til fjórar klukkustundir.

Samfélag og samvinna eru meðal grunngilda sirkuslistar. Þar fengju börnin tækifæri til að kenna foreldrum sínum þær sirkusgreinar sem þeim þykja skemmtilegastar. Þannig skapast skemmtilegt samspil milli kynslóða þar sem börnin verða kennararnir, með viðeigandi leiðsögn og stuðningi.

Vinnustofurnar verða haldnar í menningarmiðstöðinni í Búðardal, en aðstaðan þar, bæði gólf og svið, hentar vel fyrir allar vinnustofurnar.

Mikil áhersla er lögð á aðgengi og þátttöku ólíkra einstaklinga. Ég hef tíu ára reynslu af sirkuslistum og hef á þeim tíma þróað fjölbreyttar leiðir til að aðlaga æfingar að mismunandi þörfum og getu. Öll eru því velkomin.

The event will consist of four workshops between October 1st and 9th.

The workshops will cover three different circus categories and one dance category (juggling workshop (ball making and technical principles); physical theater workshop; soft acrobatics workshop based on the principles of flying low and animal flow; and a contemporary dance workshop).

Each workshop will last between two and four hours. The technical principles are based on my personal training at two European higher schools of circus arts that place special emphasis on contemporary circus and the construction of interdisciplinary performative narratives. In the circus, community is one of the core principles; therefore, ideally, upon completion of the workshops, I would like to host a family day. During this event, the little ones can teach their parents their favorite disciplines, generating intergenerational interaction where the children become the teachers (all of this, of course, with proper mediation). For the proper execution of the workshops, I have chosen the Búðardalur cultural center, whose floor and stage are ideal for carrying out all the sessions. These workshops are universally accessible to all types of bodies and minds; I have 10 years of experience in the circus field, which has led me to develop many adaptation tools, so everyone is welcome.

 

Klappleikir á Barnó! – Sunnudagur 11.október. Klukkan 11:00. Dalabúð, félagsheimilið í Búðardal.
Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu á Barnó 2026!
📅 11. október kl. 11:00
📍 Dalabúð – félagsheimilið í Búðardal
👶 Aldur: 4-10 ára og fullorðnir (yngri og eldri systkini velkomin með!)
🗣️ Tungumál: Smiðjan fer að mestu fram á íslensku en aðgengileg fjölskyldum með önnur móðurmál.
🎟Ókeypis aðgangur
Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu er fjörug fjölskyldusmiðja þar sem áhersla er lögð á leik, samveru og tónlist með einföldum og skemmtilegum klappleikjum og söngvum. Einu hljóðfærin sem við þurfum að taka með okkur erum við sjálf.
🎶 Klappsmiðjan er tilvalin leið fyrir börn að njóta tónlistar, hreyfingar og samveru.
🧸 Fjölskylduvænt og frítt – öll hjartanlega velkomin!
Sigurður Ingi Einarsson og Ingibjörg Fríða Helgadóttir eru reyndir smiðjuleiðbeinendur og tónlistarfólk. Hann er slagverksleikari og hún er söngkona og saman munu þau leiða þátttakendur í klappi, stappi og söng.
Öll börn og fullorðnir fara syngjandi heim með nýja leiki sem vekja gleði og kátínu!
Smiðjan er hluti af dagskrá Barnó – BEST MEST VEST og styrkt af Uppbyggingarsjóði Vesturlands

2025

Skapandi skrif – Ritsmiðja með Ævari Þór Benediktssyni 5. október klukkan 13:00-15:00 í Dalabúð

Hvernig maður tekur hugmynd og gerir hana að bók? Í leiðinni fer Ævar yfir hvernig hann hefur búið til bækurnar sínar og hjálpar krökkunum að byrja á sínum eigin.

 

Myndasögur og sköpun – Sýning og örsmiðjur með Myndasögusamfélaginu  – 7. október klukkan 15:00 í Dalabúð

Myndasögusamfélagið heimsækir Dalina með stutta kynningu ásamt því að kenna fólki að föndra ör-myndasögur („Zine“ á ensku, stytting á orðinu „magazine“).
Athugið að notast er við skæri á örnámskeiðinu.

Repüp textílsmiðja – Búningasmiðja fyrir 13–18 ára  – Tilkynnt innan tíðar!

 

Tónsmiðja – Í samstarfi við tónlistardeild Auðarskóla  – 5. og 6. október klukkan 16:00 í  Tónlistardeild Auðarskóla

Gísli Þór Ingólfsson leiðir tónsmiðju, fyrir 10 ára og eldri. Þátttakendur koma með hugmyndir að lagi sem þeim langar að semja og fá hjálp við að útfæra það. Gott að koma með hljóðfærin sín ef þau eiga. Þau sem hafa ekki grunn í tónlist mega taka þátt, áhugi og hugmynd að lagi er allt sem þarf.
Skráning fer fram hér: Skráning í Tónsmiðju

 

Hestafimleikar – Hestamannafélögin Þytur og Glaður sýna fimleika á hestbaki – 18. október klukkan 16:00 í Nesoddahöllinni

Hestamannafélagið Glaður fær góða heimsókn frá Hestamannafélagið Þyt þar sem við fáum að kynnast hestafimleikum! Viðburðurinn byrjar á smá sýningu og eftir það verður hægt að spyrja og prufa. Það er pláss fyrir 12 börn (6-16 ára) til að prufa en opið fyrir alla til að horfa á. Skráningar barna sem vilja prufa berist á: thoreyb@gmail.com

 

Víkingaleikar á Eiríksstöðum – Axar-, spjóta- og grjótkast í Haukadal – 11. október á Eiríksstöðum

Eiríksstaðir bjóða upp á axarkast (í fylgd með fullorðnum fyrir börn), grjótkast og spjótkast laugardaginn 11. október milli 17-18:30
Öll eru börn velkomin að mæta og taka þátt og skemmta sér með okkur. Sjáumst hress!

 

Ungmenni ræða málin – Opið samtal Ungmennaráðs Dalabyggðar– Tilkynnt innan tíðar!

 

Fjölskyldusmiðja – Skapandi smiðja í Vínlandssetrinu– Tilkynnt innan tíðar!

 

Með vindinum liggur leiðin heim – Brúðulistasýning Handbendis – Tilkynnt innan tíðar!

 

Brúðusmiðja Handbendis – Hvernig verður brúða til? – Tilkynnt innan tíðar!

 

Break Dance með Pietro fyrir 6-11 ára og 12-16 ára – 20. október klukkan 14:10 í Dalabúð

Pietro Porcu æfði brake dance í mörg ár og kenndi einnig bæði börnum og fullorðnum í nokkur ár á Ítalíu. Hann mun útskýra hvað brake dance er, stundum lítur það út fyrir að vera ómögulegt en þá þarf einmitt að brjóta það (brake it) niður til að skilja og læra. Hann mun bæði sýna okkur freestyle dans og einnig kenna okkur að dansa. Viðburðurinn tekur á bilinu 60-90 mínútur.

 

Break Dance með Pietro fyrir 12-16 ára og 12-16 ára – 21. október klukkan 15:00 í Dalabúð

Pietro Porcu æfði brake dance í mörg ár og kenndi einnig bæði börnum og fullorðnum í nokkur ár á Ítalíu. Hann mun útskýra hvað brake dance er, stundum lítur það út fyrir að vera ómögulegt en þá þarf einmitt að brjóta það (brake it) niður til að skilja og læra. Hann mun bæði sýna okkur freestyle dans og einnig kenna okkur að dansa. Viðburðurinn tekur á bilinu 60-90 mínútur.

 

Bangsadvöl í bókasafninu– 14.-16. október á milli 12:30 til 17:30

Öllum börnum er boðið að koma með bangsann sinn í pössun á Héraðsbókasafni Dalasýslu þar sem bangsinn fær að gista tvær nætur og upplifa töfra sem eiga sér stað meðan bókasafnið er lokað. Komdu með bangsann þinn milli kl. 12:30 – 17:30 þriðjudaginn 14. október. Þú færð að búa til nafnspjald og getur lesið fyrir hann áður en þú ferð heim og bangsinn fer í góðan félagsskap með öðrum böngsum. Komdu svo og náðu í bangsann á milli kl. 12:30 – 17:30 á fimmtudeginum 16. október og þá færðu að vita í hvers konar ævintýrum hann lenti!

 

Sögur barnanna í Stjórnsýsluhúsinu – sýning  – 9. október til 14. nóvember í Stjórnsýsluhúsinu

Okkur langar svo að heyra hvað börnunum hlakkar til að gera í vetur. Hérna má nálgast skjal fyrir sögugerð, í skjalinu er rammi fyrir myndskreytingu og nokkrar línur fyrir frásögn. Skjalið er hægt að prenta út heima eða ná í eintak á skrifstofu Dalabyggðar og bókasafnið. Börn á öllum aldri mega taka þátt. Foreldrar mega að sjálfsögðu hjálpa yngstu börnum við að koma frásögn á blað. Þegar sagan er tilbúin má koma með hana í Stjórnsýsluhúsið/á bókasafnið (eða skila í póstkassa utan opnunartíma) og verða myndskreyttar frásagnir hengdar upp í stigagangi hússins. Sjá skjal hér: Rammi fyrir myndskreytta frásögn

Byggðasafn Dalamanna og Héraðsbókasafn Dalasýslu eru með sýningu á leikföngum og fleiru á bókasafninu. Leikföngin eru hluti af safnkosti byggðasafnsins. Þau eru frá mismunandi tímum, bæði aðkeypt og heimagerð. Þá eru ekki alveg nýjustu Andrésar andar blöðin frammi til lestrar, dönskukunnátta er kostur. Taflborð er framan við bókasafnið fyrir áhugasama. Framan við sýningarvegg í anddyri er bekkur með skeljum sem má leika sér að eftir þörfum. Á ganginum þar sem afgreiðsla sýslumanns, lögregla og héraðsskjalasafn eru, er sýning á völdum svarthvítum ljósmyndum Lárusar Magnússonar frá Tjaldanesi af börnum í Dölum og mun víðar. Þar er líka að finna nokkra muni frá Byggðasafni Dalamanna tengda börnum.