
2026
Hringleikur – Shjówmenn – Sunnudagur 25. október. Klukkan 14.00 í Hjálmakletti.
Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna. Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.
Að sýningu lokinni verður opið sirkusnámskeið – dótakassi með ýmsum sirkusáhöldum sem gestum og gangandi er frjálst að prófa. Sirkuslistafólk Hringleiks kennir lauflétta smiðju þar sem má stoppa við í styttri eða lengri tíma á meðan á smiðjunni stendur. Stór og smá geta hér leikið sér saman og lært ýmist að djöggla, snúa diskum eða að ná jafnvægi á veltibretti. Öll velkomin.

Að mála ljóð – frekari upplýsingar á næstu dögum.
Skapandi verkefni fyrir 12–18 ára þar sem þátttakendur túlka ljóð í myndlist, annaðhvort út frá völdu ljóði eða eigin texta á hvaða tungumáli sem er. Verkefnið sameinar fræðslu um myndlæsi, leiðsögn frá listamanni og persónulega hugmyndavinnu sem leiðir til eigin myndverks á striga. Afraksturinn verður sameiginleg sýning í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar í lok október.
Allir með – í söng og á ukulele – frekari upplýsingar á næstu dögum.
Hugmyndin er um að efla tónlist í hjarta nemenda með söng, spili og gleði. Tónlistin er mikilvægur hluti af menningu okkar og gefur fjölbreyttum hópi nemenda aukin tækifæri til þess að fá að tjá sig á ólíkan hátt.
Fjósdraugar í Halldórsfjósi – frekari upplýsingar á næstu dögum.
Þátttökuverkefni þar sem börn kynnast draugasögum, þjóðsögum og menningararfi tengdum landbúnaði og útihúsum. Þau taka þátt í að æfa og flytja draugasögur, skreyta safnið og undirbúa hrekkjavökuviðburð í hlöðunni. Verkefninu lýkur með söguflutningi og hrekkjavökuballi þar sem sviðslistir, sköpun og þjóðtrú mætast.
IceGuys youngest generation – frekari upplýsingar á næstu dögum.
Söng- og dansverkefni þar sem stór hópur barna æfir saman lagið „Krumla“ og setur upp kraftmikið sviðsatriði með samstilltum dansi, söng og búningum. Markmiðið er að gefa börnum tækifæri til að æfa framkomu, samvinnu og sviðslistir og skapa atriði sem hægt væri að flytja á viðburðum.
Andlit Vesturs – Frá steini í vind – frekari upplýsingar á næstu dögum.
Nemendur í 9.bekk í Grunnskólanum í Borgarnesi, fræðast um listamanninn Pál Guðmundsson frá Húsafelli og vinna verkefni sem er innblásið af list og vinnuaðferðum Páls. Í kjölfarið halda nemendur sýningu á verkum sínum í Borgarnesi. Verkefnið gengur út á að gera andlist portrett á textíl sem saman mynda fánaborgir á opinberum stað í Borgarnesi. Aðferðir verða blandaðar en innblásnar af verkum Páls.
Sundlaugardiskó – frekari upplýsingar á næstu dögum.
Samstarfsverkefni íþróttamiðstöðvar og Félagsmiðstöðvarinnar Óðals þar sem börnum, ungmennum og foreldrum er boðið í frítt sundlaugardiskó. Haldnir verða tveir aldursskiptir viðburðir með tónlist, ljósum og skreytingum, þar sem áhersla er á gleði, samveru og virka þátttöku foreldra í félagslífi barna sinna.
Leiklist og sköpun í Uglukletti – frekari upplýsingar á næstu dögum.
Leiklistar, spuna og sköpunarnámskeið með Sigríði Ástu Olgeirsdóttur. Hún ætlar að koma með vinnustofu hingað í Ugluklett og vinna bæði með börnum og starfsfólki á skapandi hátt.
Yfir brúna – frekari upplýsingar á næstu dögum.
Samstarfsverkefni leikskólanna Klettaborgar og Andabæjar þar sem börn kynnast ólíku nærumhverfi í bæ og dreifbýli með gagnkvæmum heimsóknum. Í ferðunum heimsækja þau söfn og menningarstaði í Borgarnesi og á Hvanneyri, fá fræðslu og vinna verkefni tengd meðal annars fuglum, sögu, ullarvinnslu, landbúnaði og náttúrufræði. Markmiðið er að efla víðsýni, vinatengsl og skilning barnanna á fjölbreytileika samfélagsins.
Óperudagar – Barnaópera – frekari upplýsingar á næstu dögum.
Samstarfsverkefni með Óperudögum þar sem barnaóperan Lappeteppe Svovelsol verður flutt í íslenskri aðlögun fyrir elstu leikskólabörn og yngstu grunnskólabörnin. Verkið fjallar um haustið, náttúruna, litina og umbreytingar árstíðarinnar og býður börnum upp á leikandi og aðgengilega kynningu á óperulistinni.
2025
Landslag tilfinninganna – 12. október kl 13:00 í Safnahúsi Borgarfjarðar
Tónlistarbingó – 18. október kl 13:00 í Safnahúsi Borgarfjarðar

Tröllkonan og töfraeyjan – 17. október í félagsmiðstöðinni Óðali í Borgarnesi
Leiksýning fyrir 2–6 ára í samstarfi Listastkóla Borgarfjarðar, Óperudaga og Barnó. Elstu börnum leikskólanna boðið á þessa fallegu sýningu

Breytingar á norðurslóð – 3. september til 3. nóvember í Safnahúsi Borgarfjarðar
Nemendur í myndmennt við Grunnskólann í Borgarnesi tóku þátt í skemmtilegri smiðju tengdri verkefninu, þar sem þau fengu að skapa eigin verk innblásin af náttúrunni og umhverfinu í kringum sig.
Sýningin er unnin í samstarfi við rannsóknarhópinn Changes on Northern Shores (CNS), sem sameinar list og vísindi til að vekja athygli á lífi og breytingum á Norðurslóðum.

Hawaii SUNDLAUGADISKÓ! – Íþróttahúsinu í Borgarnesi – 7. nóvember
Ef þið eruð ekki að fíla frost á Frónni – þá bjóðum við ykkur til HAWAII í sundlauginni!
7. bekkur og yngri: 17:00-19:00
8. bekkur og eldri: 20:00-22:00
11. nóvember kl 17:00 – Spilakynning með Spilavinum – Safnahús Borgarfjarðar

Boðið í skjólbeltið á Hvanneyri – 5. nóvember klukkan 10-11 í skjólbeltinu
Nemendur í leikskólanum Andabæ sýna hvað þau eru að gera í útikennslu. Boðið uppá heitt kakó og gítarspil!
Tilkynnt innan tíðar! – Frá ull til lopa – Heimsókn í Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri
Tilkynnt innan tíðar! – Náttúrutúlkun á Landbúnaðarsafninu
Tilkynnt innan tíðar! – Safnabingó í Landbúnaðarsafninu – Fjölskylduleikur
Tilkynnt innan tíðar! – Í skóginum búa litlar verur… – Innsetning myndmenntar Grunnskólans í Borgarnesi í Skallagrímsgarði
Tilkynnt innan tíðar! – Barbí fer í leikfangasafn Soffíu – Sýning og dúkkulísusmiðja í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Leikfangasafns Soffíu í Englendingavík
Tilkynnt innan tíðar! – Hæglát sköpun í Uglukletti – Myndlistarsmiðja í leikskólanum Uglukletti
Tilkynnt innan tíðar! – Brúðulistasýning Handbendis