September, 2026

15sept - 9nóvsept 1510:36nóv 9Byggðaþróun – styrkir til meistaranemaByggðaþróun – styrkir til meistaranema

Meira

Nánari upplýsingar

Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að rannsóknartengdum lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.200.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun. Umsækjendur þurfa að stunda meistaranám við viðurkenndan háskóla.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu Byggðastofnunar. 

Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. nóvember 2026.

Við mat á umsóknum er litið til eftirfarandi þátta:

–          Tengsl verkefnis við markmið byggðaáætlunar

–          Nýnæmi verkefnis

–          Möguleikar á hagnýtingu

–          Gæði umsóknar (skýr markmið, vönduð rannsóknaráætlun og hnitmiðaður texti)

Byggðastofnun hefur frá árinu 2015 veitt styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Á heimasíðu stofnunarinnar má sjá yfirlit verkefna sem hafa verið styrkt.

Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir.

Klukkan

September 15 (Þriðjudagur) 10:36 - Nóvember 9 (Mánudagur) 23:59

Samtök Sveitarfélaga á vesturlandi Samtök Sveitarfélaga á vesturlandi
433 2310
X