Maí, 2026

6maí - 1júnmaí 613:25jún 1- 13:25Terra NýsköpunarstyrkurTerra Nýsköpunarstyrkur

Meira

Nánari upplýsingar

Nýsköpunarstyrkir fyrir verkefni sem stuðla að sjálfbærni, hreinni efnisstraumum og aukinni endurnotkun eða endurnýtingu efna.

Styrktarstefna Terra

Terra vill láta gott af sér leiða og tekur virkan þátt í því samfélagi sem fyrirtækið starfar í og hluti af þeirri þátttöku felst í styrkjum til margvíslegra málefna.

Stefna þessi endurspeglar markmið okkar í sjálfbærni og tekur mið af þeim Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem við höfum sett í forgrunn. Við viljum styrkja málefni sem gagnast nærsamfélaginu með sérstaka áherslu á umhverfismál, nýsköpun og heilbrigðan lífstíl.

Umhverfismál – Betri umgengni um jörðina

Við viljum hvetja Íslendinga til dáða og auðvelda þeim að koma efnum í réttan farveg og að mestu leyti aftur í hringrásina á umhverfisvænan hátt. Hringrásarhugsun og aukið gagnsæi í allri okkar virðiskeðju skipta okkur miklu máli. Við viljum draga úr neikvæðum áhrifum starfsemi okkar á umhverfið, hvort sem þau tengjast losun gróðurhúsalofttegunda, mengun frá starfsstöðvum eða áhrifum á líffræðilegan fjölbreytileika. Við leggjum líka áherslu á að starfsemi okkar sé til fyrirmyndar þegar kemur að úrgangsmyndun og flokkunarhlutfalli.

Nýsköpun – Sköpum nýjar leiðir í átt að hringrásarhugsun

Við viljum hafa jákvæð áhrif á samfélagið, meðal annars með því að styðja við nýsköpun í átt að sjálfbærni. Við trúum á nýsköpun sem mikilvæga leið til að gera efnisstraumana hreinni og auka endurnotkun/endurnýtingu efna í átt að hringrásarhugsun.

Heilbrigður lífstíll – Stuðlum að heilbrigði

Mikilvægur hluti af sjálfbærni er heilsa og vellíðan okkar í samfélaginu í dag og til framtíðar litið. Við viljum styðja við verkefni sem stuðla að heilbrigðum lífstíl í víðu samhengi og horfum til andlegrar og líkamlegrar heilsu, heilsueflandi forvarna, íþrótta og æskulýðs- og félagsstarf barna og ungmenna. Við leggjum sérstaka áherslu á að styrkja við æskulýðstengd verkefni barna og ungmenna enda eru þau framtíðin. Þá tökum við ákvarðanir með fjölbreytni og jafnrétti kynjanna í huga við úthlutun styrkja.

Auk þess styrkir félagið einstök góðgerðarmál, m.a. er átt við mannúðar, góðgerðar- og hjálparstarf.

Klukkan

Maí 6 (Miðvikudagur) 13:25 - Júní 1 (Mánudagur) 13:25

Samtök Sveitarfélaga á vesturlandi Samtök Sveitarfélaga á vesturlandi
433 2310
X