
Akraneskaupstaður
2026
Akranes í augum barna – Barnamenningarbók Akraness 2026 – 3. október kl 11:00-14:00 á Bókasafni Akraneskaupstaðar
Hvernig sjá börnin Akranes? Hvar finnst þeim skemmtilegast að vera og hvað myndu þau vilja sjá í bænum sínum?
Í opinni vinnustöð fá börn að teikna og/eða skrifa um Akranes með sínum eigin augum. Börnin geta valið úr þremur skemmtilegum verkefnum og mega gera fleiri en eitt ef þau vilja. Verkunum verður safnað saman og útbúin Barnamenningarbók Akraness 2026, sem varðveitir hugmyndir og sýn barnanna á bæinn sinn. Bókasafninu verður svo afhent prentað eintak til varðveislu. Öll börn velkomin. Umsjón með verkefninu: Margrét Hlíf Óskarsdóttir
Hægt er einnig að fylgjast með viðburðinum á Facebook.

Heimildamyndabíó í kvikmyndahúsum, miðað að börnum – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Inngangur
Á Barnó, barnamenningarhátíð Vesturlands, býður teymið sem áður stóð að IceDocs, heimildamyndahátíðinni á Akranesi, upp á fjölbreytta dagskrá þar sem börn kynnast kvikmyndum, ljósmyndun og hönnun með því að skapa sjálf.
Leikmyndagerð – námskeið. 24-25. október
Hvernig lítur heimurinn út þar sem sagan gerist? Á þessu námskeiði fá krakkar tækifæri til að hanna sína eigin leikmynd frá grunni og búa til líkan af henni. Þátttakendur kynnast því hvernig rými, litir og efni skapa andrúmsloft og segja sögu, og fara heim með sitt eigið leikmyndalíkan. Kennari er Sara Hjördís Blöndal.

Mynstur í nærumhverfinu – ljósmyndaæfing fyrir leikskóla
Leikskólum býðst ljósmyndaæfing fyrir elstu börnin. Með spjaldtölvu að vopni fara krakkarnir á stjá og leita að áhugaverðum mynstrum í sínu nánasta umhverfi, í laufblöðum, gangstéttarhellum, girðingum eða hverju því sem fangar augað. Æfingin skerpir athyglina og sýnir börnunum að fegurðin leynist víða. Kennari er Steinunn Arinbjarnadóttir.
Phenakistoscope – hreyfimyndaleikfang fyrir frístundaheimili
Löngu áður en kvikmyndin kom til sögunnar gat fólk látið myndir hreyfast með einföldum snúningsdiski. Frístundaheimilum býðst að panta föndurpakka með öllu sem þarf til að búa til phenakistoscope, eitt af fyrstu hreyfimyndaleikföngum sögunnar, ásamt leiðbeiningum. Það eina sem þarf að bæta við eru skæri og litir – og hugmyndaflug krakkanna.
Stuttmyndir fyrir grunnskóla
Grunnskólum á Vesturlandi býðst úrval stuttmynda frá ýmsum löndum til að nýta í kennslu. Myndunum fylgja umræðupunktar sem hjálpa nemendum að rýna í það sem þau sjá, kynnast ólíkum menningarheimum og ræða kvikmyndir sem listform.
Taktur og texti – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Smiðja í Tónlistarskólanum
Flugdrekasmiðja – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Skapandi námskeið þar sem börn kynnast sögu og smíðatækni flugdreka, með sérstakri áherslu á hefðbundna japanska aðferð. Þátttakendur læra um efnisval, jafnvægi og eðlisfræði flugsins og smíða sinn eigin flugdreka sem síðan er reynt að koma á loft. Námskeiðið sameinar handverk, sögu, sköpun og verklega tilraunastarfsemi.
Kórtónleikar Skólakórs Grundaskóla – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Risa Tarzan leikur – Laugardagur 24. október í íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi.

Risa Tarzan leikur í boði Kotsins Sauna, Barnó – Barnamenningarhátíðar Vesturlands og Vökudaga.
Slegið verður upp Tarzan braut þar sem hægt verður að hafa gaman og sprikkla.
Skipt verður í aldurshópa en foreldrar velkomnir með.
15:30 I 5 – 9 ára
16:40 I 10 – 15 ára
Hrekkjavaka á bókasafninu – Laugardaginn 31. október. Klukkan 11.00-14.00 á Bókasafni Akraness.
Við ætlum að eiga góða stund saman í föndursmiðju þar sem við búum til draugakastala og á safninu verður draugahús þar sem sagðar verða draugasögur.
Við hvetjum alla til að mæta í búningum, bæði börn og fullorðna.
Búið til umhverfi í anda Hrekkjavöku og börnum og fullorðnum boðið á hræðilegar sögustundir.

Myndasöguvinnustofur – Miðvikudagur 7. október. Klukkan 16.30-17.40 á Bókasafni Akraness.
Manga og Persónusköpun.
Vinnustofa með Ötlu Hrafney fyrir 12-16 ára. Höfundurinn Atla Hrafney fer með krökkunum í töfraheima persónusköpunar og hvernig það hefur áhrif á hönnun manga. Að lokum munu þau búa til sínar eigin manga karaktera.

Myndasöguvinnustofur – Þriðjudagur 27. október. Klukkan 16.30-17.40 á Bókasafni Akraness.
Vinnustofa með Ötlu Hrafney fyrir 12-16 ára. Myndasögugerð er algjör ráðgáta. Er hægt að búa til myndastöu ef þú kannt ekki að teikna? Hvað á myndasga að vera löng?
Hvernig lætur þú hugmynd fyrir myndasögu verða að veruleika?
Atla svarar þessu og meira í vinnustofu sérhæfð fyrir yngri teiknara sem eru að taka sín fyrstu skref í þessum spennandi heimi.

Hvalfjarðarsveit
Lúkas lesmús – Þriðjudagur 13. október. Leikskólanum Skýjaborg og grunnskóla Heiðarborg.
Lúkas lesmús – höfundur, Brynhildur Stefánsdóttir, les fyrir nemendur í leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
Ungmenni ræða málin – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Opið hús ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar fyrir ungmenni í Hvalfjarðarsveit – Ungmenni ræða málin.
Tarzan leikur í Heiðarborg – frekari upplýsingar verða birta síðar.
Sketsagerð „leiktu fullorðna“ – skilafrestur til 31. október.
Ungmenni á Vesturlandi, athugið!
ERTU MEÐ HUGMYND AÐ GÓÐUM SKETS?
Býr kvikmyndagerðarmaður, handritshöfundur eða leikari í þér? Nú er tækifærið til að láta ljós þitt skína ![]()
Í tilefni Barnó – Best Mest Vest efnir Hvalfjarðarsveit til sketsasamkeppni fyrir ungmenni á Vesturlandi. Þemað er: „Leiktu fullorðna“
Fáðu hugmynd, taktu upp og sendu okkur sketsinn þinn.
Í dómnefnd sitja:
– Bergur Líndal, kvikmyndagerðarmaður.
– Brynhildur Stefánsdóttir, formaður menningar- og markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar.
– Matthías Tryggvi Haraldsson, handritshöfundur.
Verðlaun verða veitt fyrir skemmtilegastu myndverkin (1, 2 og 3 sæti).
Skilafrestur: 31. október.
Sendu inn sketstinn í gegnum sharepoint: https://hvalfjardarsveit-my.sharepoint.com/…/IgCerystVe…
Verkefnið felst í því að búa til stuttan skets undir þemanu „Leiktu fullorðna“. Í sketsinum eiga ungmenni að setja sig í hlutverk fullorðinna og túlka þau á sinn eigin hátt. Hægt er að sækja innblástur í daglegt líf, til dæmis foreldra, kennara, vinnustaði eða aðrar aðstæður sem tengjast fullorðinsárunum. Hægt er að vinna sketsinn einn eða í hópi.

Skott eða gott – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Verkefnið „Skott eða gott“ fer fram á Halloween, 31. október, í Melahverfi. Markmiðið er að skapa skemmtilega Halloween-stemningu. Börn geta gengið á milli húsa í Melahverfi, bankað upp á og fengið nammi hjá þeim íbúum sem vilja taka þátt. Þar sem Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með nokkra kjarna þá verður einnig hægt að taka þátt með því að mæta á planið við stjórnsýsluhúsið með bíl og skreyta skottið. Börnin geta þá gengið á milli skreyttra bíla og fengið „gott“ úr skottinu.
Þjálfari í nýju þreksal – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Nýr og glæsilegur þreksalur mun opna í Heiðarborg, búinn nýjum æfingatækjum frá Technogym. Í tengslum við opnun salarins verður boðið upp á opna tíma sérstaklega fyrir ungmenni. Í opnu tímunum mun þjálfari taka á móti ungmennunum, kynna fyrir þeim aðstöðuna og fara yfir hvernig tækin eru notuð á réttan og öruggan hátt.
Listasýning í gluggum Skýjaborgar – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Börn á leikskólanum Skýjaborg standa fyrir listasýningu. Gluggar leikskólans verða nýttir sem sýningarrými og vegfarendur og íbúar geta komið við, skoðað verkin og notið sýningarinnar utan frá.
Sirkus – Karnival – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Sirkusnámskeið fyrir nemendur í Heiðarskóla þar sem þeir kynnast sirkuslistum, læra meðal annars að gögla og búa til eigin sirkusáhöld. Námskeiðinu lýkur með sirkussýningu þar sem gestum verður boðið að sjá afrakstur verkefnisins. Þjálfarið er Jörgen Nilsson.
Spilagerð og spilakvöld – frekari upplýsingar verða birtar síðar.
Börnin fá tækifæri til að hanna og búa til sín eigin spil. Í framhaldinu verður haldið spilakvöld þar sem börnin geta kynnt spilin sín, spilað saman og boðið fjölskyldum og öðrum gestum að taka þátt. Þjálfarið er Jörgen Nilsson.
2025
Bókaútgáfusmiðja Mörtu! – 11. nóvember kl 16:00 í Bókasafni Akranesskaupstaðar

Strengjamót – Stórtónleikar strengjakrakka – 12. október klukkan 12:00 í Íþróttahúsinu Vesturgötu
Stórtónleikar nemenda í tónlistarskólum hringinn í kringum landið!

KrakkaTónlist á Vökudögum – Tónlistarskólinn á Akranesi
Átt þú barn á leikskólaaldri eða enn yngra? Finnst barninu þínu gaman að syngja og spila tónlist? Þá er KrakkaTónlist eitthvað fyrir þig og þitt barn. Með tónlistinni örvum við meðal annars skynþroska, hreyfigetu og málþroska. Foreldrar eru með í tímanum. Tímar eru eftirfarandi:
Krakkar 3-5 ára: 25. október klukkan 13:30-14:00
Krakkar 1-3 ára: 25. október klukkan 14:10-14:40
Krílin – 2-18 mánaða: 27. október klukkan 11:00-11:30
Viðburðurinn á Facebook og skrángingar hér

Risa Tarzan-leikur – Íþróttahúsinu vesturgötu klukkan 13:00-17:00
Slegið verður upp Tarzan braut þar sem ungir og gamlir geta spriklað. Skipt verður í aldurshópa en foreldrar velkomnir með…. ef þau þora!! Samstarfsverkefni Kotsins Sauna, Barnó og Vökudaga.
Skipt verður uppí aldurshópa:
5-8 ára klukkan 13:00
9- 12 ára klukkan 14:00
13-18 ára klukkan 16:00
Fullorðnir krakkar klukkan 16:00

Umskiptingarnir og Töfrabækurnar – Fóa og Fóa Feykirófa – 26. október klukkan 12:00 og 13:30 í Garðaseli
Umskiptingar bjóða ykkur velkomin í undraheim Töfrabókanna. Þegar bókin er opnuð birtist heillandi heimur og sagan lifnar við. Töfrabækurnar er brúðuleikhús fyrir yngstu kynslóðina. Nú er komið að sögunni um skessurnar Fóu og Fóu Feykirófu en hún fjallar um það þegar Fóa Feykirófa rekur Fóu úr hlýja, fallega hellinum sínum og sest þar sjálf að. Fóa veit ekki hvað skal til bragðs taka en vinir hennar, lambið, kindin, sauðurinn og hrúturinn bjóða öll fram hjálp sína að ná honum til baka. Það gengur þó ekki áfallalaust fyrir sig. Viðburðurinn á Facebook

Dansfjör með Tinnu á Vökudögum – 26. október í Þorpinu
Skagamærin Tinna Björg Jónsdóttir ætlar að bjóða upp á skemmtilegt dansnámskeið í Þorpinu sunnudaginn 26. október. Tinna hefur dansað með Herra Hnetusmjör á söngvakeppninni, með VÆB í krakka skaupinu, dansað í fullt af auglýsingum, tekið þátt í Danskeppni Samfés og unnið, farið í dans ferð erlendis og svo margt fleira. Um er að ræða þrjá aldurshópa:
5-8 ára klukkan 13:30-14:15
9-12 ára klukkan 14:30-15:30
13+ ára klukkan 15:45-16:15

Bolasmiðja Þorpsins – 28./29. október klukkan 17:00-19:00 í félagsmiðstöðinni Þorpinu

Veggjalist á Vökudögum! – 28./29. október klukkan 16:30-19:00 í Þorpinu
Listamaðurinn Brynjar Mar býður ungu fólki í 7-10 bekk að taka þátt í að skapa veggjalistaverk í Þorpinu. Farið verður yfir helstu tækni veggjalistar og munu þau í samvinnu mála glæsilegt verk á vel valin vegg í Þorpinu. Athugið að það þarf að skrá sig til þátttöku og takmarkaður fjöldi í boði! Skráningar fara fram hér.

Dúkkulísusmiðja ÞYKJÓ! – 1. nóvember klukkan 13:00-15:00 í félagsmiðstöðinni Þorpinu
Hið frábæra og þverfaglega hönnunarteymið Þykjó ætla að heimsækja Akranes og halda bráð skemmtilega fjölskyldusmiðju þar sem við brettum upp ermarnar og setjum okkur í spor fatahönnuða! Opið hús og öll velkomin.

Lilló Hardcore Fest – 31. október – 1. nóvember í Gamla Landsbankanum
Geggjuð harðkjarna-þungarokks-pönkhátíð í hjarta Akranes – í gamla Landsbankahúsinu við Akratorg – heyrst hefur að sjómaðurinn góði slammi hausnum í takt við ryþmann! Frábær hátíð fyrir krakka á öllum aldri!
Viðburðurinn og dagskrá á Facebook
Opið hús í Grundarskóla – Ný list- og verkgreinaálma, sýning á nemendaverkum – Tilkynnt innan tíðar!

Impresjónískt Akrafjall – Í Tónlistarskólanum á opnunartíma skólans
Nemendur í 6. bekk Brekkubæjarskóla fara í slopp meistara Monet og mála Akrafjallið fagra í anda impressijónisma. Útkoman er óvænt samspil náttúru, birtu og skapandi hugsunar.

Hringleikur: Shjówmenn – 29. október klukkan 14:30 Íþróttahúsinu Vesturgötu
Glænýja tveggja manna sirkussýning sem heitir Shjówmenn og fjallar um tvo trúða að takast á við lífið á sjó í gegnum sirkuslistir. Látið ekki þessa stórkostlegu sýningu framhjá ykkur fara!

Hrekkjavökutónleikar í Tósku – Tónlistarskólinn klukkan 18:00
Hryllilegir tónleikar í Tónabergi! Öll velkomin og – öll hjartanlega velkominn! Þetta verður samt eitthvað skelfilegt….
Myndlist í Skógræktinni – Sýning nema úr Arkaseli á Akranesvita – Tilkynnt innan tíðar!
Formin og náttúran okkar – Verk nemenda í Teigaseli, byggð á stærðfræði – Tilkynnt innan tíðar!
Listsýning í Gardaseli – Myndlist í gluggum skólans – Tilkynnt innan tíðar!
Listsýning í Vallarseli – Myndlist í gluggum skólans – Tilkynnt innan tíðar!
Leikverk Gundarskóla – Nemendur setja upp leikverk frá A–Ö – Tilkynnt innan tíðar!
Kellingar leika sér – Sögur og skemmtun á bókasafninu – Tilkynnt innan tíðar!
Júróvisjóntónleikar Vallarsels – Tónleikar elsta hóps í Tónabergi – Tilkynnt innan tíðar!
Prinsessusögur – Fjöltyngd sögustund í bókasafninu – Tilkynnt innan tíðar!
Sirkussmakk Húlladúllunnar – Smíðja í sirkuslistum – Tilkynnt innan tíðar!
Ljósagull og eldlistasýning – Töfrandi sýning Húlladúllunnar – Tilkynnt innan tíðar!
Hvalfjarðarsveit
Tilkynnt innan tíðar! – Bókaútgáfusmiðja Mörtu – Hvernig verður barnabók til?
Tilkynnt innan tíðar! – Frá ull til lopa – Heimsókn í Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri

Kökukeppni Unglingastigs – 15. október í Heiðarskóla
Verðlaun veitt fyrir frumlegustu kökuna!

Opið hús og PÓGÓ! – 15. október klukkan 17:00-19:00 í féalgsmiðstöðunni Heiðarskóla
Opið hús, leikur og glens í félagsmiðstöðinni!

Skott eða gott? – 31. október klukkan 17:00-18:30 í Melahverfi
Íbúar í Melahverfi sem vilja taka þátt eru hvattir til að skreyta húsin sín, svo bornin viti hvar þau mega banka pp á og fá nammi. Þeir sem búa utan hverfisins geta einnig tekið þátt með því að leggja bílunum sínum við stjórnsýsluhúsið í Melahverfi, skreyta skottið og bjóða upp á nammi þaðan.

Heiðarskóli 60 ára! – 7. nóvember
Heiðarskóli verður sextugur þann 9. nóvember en haldið verður upp á afmælið 7. Nóvember með ýmiskonar sýningum nemenda, sögu Heiðarskóla í myndum og verkum. Opið hús og öll velkomin!
Tilkynnt innan tíðar! – Gerðu þinn eigin húllahring með Húlladúllunni – Smiðja í húllahringagerð
