Opinn fundur um samgöngumál á Vesturlandi verður haldinn miðvikudaginn 24. janúar næstkomandi frá kl. 18:00 til 20:00 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Fundarstjóri er Páll S. Brynjarsson

Dagskrá fundarins:
- 18.00 Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi setur fundinn
- 18.10 Eyjólfur Árni Rafnsson formaður starfshóps um möguleika á framkvæmdum á stofnleiðum í nágrenni Reykjavíkur og fjármögnun þeirra - Flýting vegframkvæmda og fjármögnun þeirra
- 18.30 Geirlaug Jóhannsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð - Lífæð Vesturlands
- 18.50 Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ - Brýnustu úrbætur í vegamálum fyrir Vesturland
- 19.05 Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
- 19.25 Opnað fyrir umræður í sal
- 19.50 Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi slítur fundi
Boðið verður upp á súpu og hressingu þegar fundi lýkur.
sjá frétt á heimasíðu Akraneskaupstaðar:
https://www.akranes.is/is/frettir/opinn-fundur-um-samgongumal-a-vesturlandi