Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkum ráðuneytisins. Meginviðfangsefni þeirra verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður nýsamþykkt byggðaáætlun kynnt.
Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum, sem flestir eru haldnir milli kl. 15:00-17:00 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams en skráning fer fram hér að neðan. Skráningu lýkur daginn fyrir hvern fund. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina.
Fundir um land allt
Dagskrá samráðsfunda og skráningarhlekkir.
Dags. |
Staður |
Skráning |
Tími |
|
10. okt. |
Höfuðborgarsvæðið |
Lokið |
15-17 |
11. okt. |
Suðurland |
Lokið |
16-18 |
18. okt. |
Austurland |
Lokið |
15-17 |
19. okt. |
Norðurland eystra |
Skráning |
15-17 |
20. okt. |
Norðurland vestra |
Skráning |
15-17 |
24. okt. |
Vestfirðir |
Skráning |
15-17 |
26. okt. |
Vesturland |
Skráning |
15-17 |
27. okt. |
Suðurnes |
Skráning |
15-17 |
Reglulegt samráð
Samráðsfundirnir verða ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) verða til að mynda birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst öllum tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar.
Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins -irn@irn.is
Tengill á stjórnarráðið: https://www.stjornarradid.is/raduneyti/innvidaraduneytid/radstefnur-og-fundir/vordum-leidina-saman-/