Vífill Karlsson hagfræðingur og skýrsluhöfundur
Landsátakinu Ísland ljóstengt lýkur á þessu ári, en síðustu styrktarsamningar Fjarskiptasjóðs við sveitarfélög um ljósleiðarauppbyggingu í dreifbýli utan markaðssvæða voru undirritaðir í lok síðasta mánaðar.
Vífill Karlsson hagfræðingur og atvinnuráðgjafi SSV vann skýrslu um Ísland ljóstengt fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og leiðir hún í ljós ótvíræðan árangur og samfélagslegan ávinning af verkefninu. Í niðurstöðum skýrslunnar segir að betri fjarskiptatengingar hafi bætt lífsgæði íbúa á landsbyggðinni og aukið byggðafestu og atvinnuöryggi.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti árangur og samfélagslegan ávinning af landsátakinu á kynningarfundi í ráðuneytinu þann 12. maí s.l. Auk hans flutti formaður fjarskiptasjóðs ávarp, sveitarstjórnarfólk fjallaði um reynslu af Íslandi ljóstengt og loks kynnti Vífill Karlsson höfundur skýrslunnar efni henni nánar.
Í skýrslunni um samfélagsleg áhrif af verkefninu Ísland ljóstengt eru kynntar fjölmargar áhugaverðar niðurstöður en höfundur hennar er Vífill Karlsson, hagfræðingur. Ljóst er að verkefnið hefur bætt aðgengi og gæði nettenginga á þeim svæðum sem hlotið hafa styrk til uppbyggingar sem hefur haft mikil áhrif fyrir íbúa í dreifbýli.
Helstu niðurstöður skýrslunnar: