Styrkir til nýsköpunar og atvinnuþróunar veittir á Nýsköpunardegi SSV
Á miðvikudaginn var haldin Nýsköpunardagur SSV í Landnámssetrinu í Borgarnesi þar sem veittir voru 9 styrkir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Venjan er að afhenda einnig Nýsköpunarverðlaun Vesturlands á þessum degi en að þessu sinni var ákveðið að afhenda þau á sérstakri afmælishátíð SSV sem verður haldin 15. nóvember n.k. en í ár fagnar SSV 50 ára afmæli.
Páll S. Brynjarsson,
framkvæmdastjóri SSV setti athöfnina en byrjað var á því að hlýða á fræðsluerindi
frá annars vegar Evu Karen Þórðardóttur, verkefnastjóra hjá Símenntunarmiðstöð
Vesturlands sem fjallaði um verkefnið „Fræðslustjóri að láni“ og hinsvegar Heiðari
Mar Björnssyni, kvikmyndagerðamanni sem kynnti starfsemi Coworking
nýsköpunarseturs á Akranesi. Eftir mjög
svo áhugaverð erindi var farið í að veita styrki til þeirra 9 verkefna sem
hlutu styrk að þessu sinni úr Uppbyggingarsjóðnum til nýsköpunar og
atvinnuþróunar. Alls voru veittir styrkir að upphæð 9,3 mkr. en alls bárust 23 umsóknir. Ólafur Sveinsson
forstöðumaður atvinnuráðgjafar SSV og Ólöf Guðmundsdóttir, atvinnuráðgjafi SSV
afhentu styrkina.
Verkefnin sem hlutu styrki
voru:
Íslensk bláskel og sjávargróður ehf. / Fullvinnsla Sjávargróðurs 2.600.000
Iceland Protein ehf. / Frá úrgangi í hátækni matvælavinnslu 1.400.000
Skúli H. Guðbjörnsson / Heimavinnsla landbúnaðarvara í Dölum 1.200.000
Brugghús Steðja ehf. / Collagen drykkir 1.000.000
Líndal ehf. / innoLegal - skjalabrunnur 1.000.00
Matís ohf. / Vöruþróun folaldakjöts 600.000
Anna Lára Steindal / Hamingjuráðuneytið - sjálfbærnisetur 500.000
Magnús Björn Jóhannsson / Iceland's little secret's 450.000