Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins boða til kynningarfundar um verkefnið Fram á völlinn sem kemur í kjölfar verkefnisins Gríptu boltann sem Framleiðnisjóður landbúnaðarins stóð að. Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar í sveitum landsins og efla þannig fjölbreytni í atvinnulífi og auka lífsgæði.
Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit og verður í boði í Þingeyjarsýslum og Dölum í haust.
Kynningarfundir um verkefnið verða haldnir á tveimur stöðum í næstu viku: • Félagsheimilið Árblik í Dölum, mánudaginn 14. október kl. 17:00 • Gamli Barnaskólinn Laugum, þriðjudaginn 15. október kl. 17:00