Haustþing SSV var haldið að Klifi í Ólafsvík
Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi var haldið í
Klifi í Ólafsvík 25.september s.l.
Eggert Kjartansson formaður SSV setti þingið. Páll Brynjarsson framkvæmdastjóri fór yfir
fjárhags- og starfsáætlun SSV fyrir árið 2020 og Margrét Björk Björnsdóttir forstöðumaður
kynnti starfsáætlun Markaðsstofu Vesturlands.
Þá var kynnt tillaga að Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2040 sem unnin var
í samstarfi við Capacent ráðgjöf og var samþykkt að vísa henni til umsagnar
íbúa.
Vinnuhópar unnu ályktanir þingsins sem í lok dags voru svo
ræddar og samþykktar og birtar verða á heimasíðu SSV. Í hádegishléi fóru
þingfulltrúar í skoðunarferð um Snæfellsbæ undir leiðsögn Kristins Jónassonar
bæjarstjóra í Snæfellsbæ. Eftir hádegi fluttu ávörp Sigurður Ingi Jóhannsson,
samgöngu og sveitarstjórnarráðherra, Haraldur Benediktsson, fyrsti þingmaður
Norðvestur-kjördæmis og Aldís Hafsteinsdóttir,formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Að loknum erindum gesta var opnað fyrir fyrirspurnir og umræður.
Að ávörpum loknum stýrði Sigurborg Hannesdóttir samtali um umhverfismál. Þar voru þátttakendur Ragnhildur Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Svæðisgarðs Snæfellsness, Kristinn Jónasson bæjarstjóri og formaður stjórnar Sorpurðunar Vesturlands, Stefán Gíslason umhverfisfræðingur og Sara Rós Huld Róbertsdóttir framhaldsskólanemi. Þingfulltrúar tóku virkan þátt í samtalinu sem bar yfirskriftina „Að hugsa á heimsvísu og framkvæma heima fyrir – viðfangsefni og tækifæri sveitarfélaganna á Vesturlandi í umhverfismálum.“
|