96 Fréttabréf #176
Stjórn SSV skorar á Vegagerðina ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏ ͏
 
logo-postlisti
Fréttabréf #176
 
 
Stjórn SSV skorar á Vegagerðina

Á 147. fundi stjórnar SSV var rætt um þær breytingar sem framundan eru á umsjón með rekstri almenningssamgangna á milli sveitarfélaga á Vesturlandi.  Nú liggur fyrir að SSV mun láta af umsjón með verkefninu og mun Vegagerðin taka yfir frá og með 1. janúar 2020.  Stjórn bókaði eftirfarandi um málið:

Stjórn SSV tekur undir afstöðu fulltrúa
landshlutasamtaka í viðræðum um framtíðar rekstrarform almenningssamgangna.
Ítrekað er að almenningssamgöngur eru verkefni á ábyrgð ríkisins og eiga því að
vera fjármagnaðar að fullu af ríkinu. Það að gera landshlutasamtökin og þar með
sveitarfélögin í landinu fjárhagslega ábyrg fyrir málaflokknum að hluta er ekki
ásættanleg niðurstaða.

Stjórn SSV skorar á Vegagerðina að reka áfram þær leiðir á Vesturlandi sem eru í núverandi leiðarkerfi. Þá vill stjórn árétta mikilvægi þess að heimamenn hafi aðkomu að skipulagi almenningssamgangna vegna staðbundinnar þekkingar á þörf og leiðarvali og er reiðbúin til samstarfs um það verkefni.  

Mynd: west.is
https://ssv.is/fundargerd/147-ssv-stjorn/