SSV óskar eftir að ráða verkefnastjóra
Verkefnastjóri Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) óska eftir að ráða verkefnastjóra. Viðkomandi starfar að verkefnum á öllu Vesturlandi. Starfssvið: • Ráðgjöf við fyrirtæki, einstaklinga og sveitarfélög varðandi menningarmál •Umsjón með styrkveitingum Uppbyggingarsjóðs Vesturlands til menningarverkefna •Vinna við áhersluverkefni sóknaráætlunar Vesturlands og önnur byggðaþróunarverkefni •Eftirfylgni með velferðarstefnu Vesturlands
Menntunar- og hæfniskröfur: •Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi •Þekking á menningarlífi og sveitarfélögum á Vesturlandi er mikils virði •Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum •Frumkvæði, fagmennska og geta til að vinna sjálfstætt •Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti •Góð tölvukunnátta
Upplýsingar veita: Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@hagvangur.is Gyða Kristjánsdóttir gyda@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2019. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.
|