Vesturland valið vetraráfangastaður Evrópu

SSVFréttir

Annað árið í röð hefur Vesturland hlotið viðurkenningu hjá tímaritinu Luxury Travel Guide. Árið 2017 var það valið sem myndrænasti áfangastaður Evrópu en árið 2018 sem vetraráfangastaður Evrópu, eða; ,,Winter Destination of Europe 2018“. Tímaritið sérhæfir sig í skrifum um áfangastaði, hótel, heilsulindir, tækni og fleira en blaðið leggur áherslu á betur borgandi ferðamenn. „Vesturland var valið vegna mikillar náttúrufegurðar og þá sérstaklega heillandi yfir vetrarmánuðina,“ segja starfsmenn Markaðsstofu Vesturlands sem tóku við viðurkenningunni fyrir hönd landshlutans.

Margir staðir nefndir

Í greininni hjá Luxury Travel Guide eru m.a. nefnd falleg skíðasvæði og náttúrulaugarnar í Krauma í Borgarfirði þar sem hægt er að slaka á og njóta í fallegu umhverfi, í heitu vatninu úr Deildartunguhver. Paradísin Snæfellsnes með töfrandi hraunbreiðurnar heilla jafnframt, eldgígarnir og litlu fiskiþorpin. Auk þess eru nefnd falleg svæði í kringum Húsafell með fossana, villtu blómin og nálægðina við ísgöngin í Langjökli og Víðgelmi, stærsta hraunhelli landsins. Þá eru einnig nefndir fjölmargir fallegir og myndrænir staðir þar sem sjá má norðurljósin.

„Þegar Vesturland er annars vegar er af nægu að taka og ferðaþjónusta hefur blómstrað hér á síðustu árum bæði með nýjungum og rótgrónum ferðaþjónustufyrirtækjum. Mikið hefur verið lagt í að auka aðgengi og byggja upp áfangastaði. Það eru spennandi tímar framundan á Vesturlandi og við tökum fagnandi á móti nýju ári,“ segir starfsfólk Markaðsstofu Vesturlands.

Frétt af Vef Skessuhorns.

Verðlaunagripurinn frá Luxury Travel Guide var myndaður á kanti Guðlaugar við Langasand á Akranesi. Ljósm. Markaðsstofa Vesturlands.