Vesturland í þættinum Landsbyggðir á N4

SSVFréttir

Í nýjasta þætti þáttaraðarinnar Landsbyggðir á N4 er viðtal við Pál S. Brynjarsson framkvæmdastjóra SSV þar sem Karl Eskill Pálsson fréttamaður ræðir við hann um verkefni landshlutasamtaka sveitarfélaga, Sóknaráætlun Vesturlands og almennt um stöðu sveitarfélaga á Vesturlandi.  Einnig er í þættinum viðtöl við frumkvöðla á Vesturlandi sem áður hafa birst í þættinum Að vestan.  Eins og áður segir er þátturinn sýndur á sjónvarpsstöðinni N4.  Í september verður síðan sýndur þáttur á stöðinni um samgöngumál á Vesturlandi.

Hér er linkur að viðtalinu:

https://www.youtube.com/watch?time_continue=1105&v=fldTKjohnHg