Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi.

SSVFréttir

Föstudaginn 23. Mars. s.l.  fór fram úthlutunarhátíð á styrkjum Uppbyggingarsjóðs Vesturlands í  nýja Amtsbókasafninu í Stykkishólmi, úthlutað voru kr 40.425.000 til  78 verkefna, en alls bárust 129 umsóknir.

Páll S. Brynjarsson setti athöfnina  og þau Elísabet Haraldsdóttir Menningarfulltrúi og Ólafur Sveinsson forstöðumaður atvinnuráðgjafar afhentu styrkina ásamt Helenu Guttormsdóttur  formanni úthlutunarnefndar.

Tónlistarskólinn í Stykkishólmi var með tónlistaratriði  þar sem þau  László  og Anastasia spiluðu fyrir okkur  á píanó og þverflautu.

Styrkþegum er bent á að senda undirritaða samninga sem fyrst svo greiðsla geti farið fram.

Mynd: Skessuhorn/tfk.

 

Mynd:SBÞ Mynd:SBÞ Mynd:SBÞ Mynd:SBÞ Mynd:SBÞ