Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024

SSVFréttir

Við kynnum „Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024“ en hún er þróunaráætlun landshlutans og felur í sér stöðumat hans, framtíðarsýn, markmið og áherslur til að ná fram þeirri framtíðarsýn. Sóknaráætlun Vesturlands byggir á fimm grunnþáttum; velferð, umhverfi, samgöngur, menning og atvinna. Þá voru allir þessir grunnþættir tengdir við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Í áætluninni eru sett fram skýr mælanleg markmið og áherslur sem verða leiðarljós við val á áhersluverkefnum sem og við úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands.

Sóknaráætlun Vesturlands fyrir árin 2020-2024 var sett í opið samráðferli þar sem allir gátu sent inn ábendingar og tillögur varðandi áætlunina, markmið hennar og innihald.
Því ferli lauk í nóvember og hér má því sjá útkomuna og endanlega áætlun.

Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024