Átak um söfnun og endurvinnslu raftækja

SSVFréttir

Átak um söfnun og endurvinnslu raftækja

Hvað verður um rafeindatæki á þínu heimili og þínum vinnustað ?

Alþjóðlegt átak verður í söfnun raftækja í október 2018. Laugardagurinn 13. Október verður
sérstaklega helgaður átakinu.
Ástæða þess að blásið er til átaks í söfnun er sú að rafeinda- og raftæki eru að skila sér í alltof
litlu mæli inn til endurvinnslu. Um er að ræða tæki sem oft má endurnýta með einhverjum
hætti eða setja þau í endurvinnslu. Dýrmætar auðlindir, svo sem eðalmálmar eins og gull, er
mjög æskilegt að ná í og endurnýta við framleiðslu nýrra raftækja.
Um leið og einstaklingur kaupir tölvu, lyklaborð, síma, sjónavarp eða eitthvert það raftæki
greiðir kaupandinn úrvinnslugjald sem er í raun tollur sem á að standa undir úrvinnslu
viðkomandi tækis þegar líftíma þess lýkur.

Þú, lesandi góður, ert því búinn að greiða fyrir förgun og endurnýtingu raftækjanna við
kaupin og því er ærin ástæða til að koma öllum raftækjum sem þú vilt losna við þessum
úrgangsflokki inn á endurvinnslustöðina sem er í þínu sveitarfélagi.

Gefðu þér smá stund til að horfa á stutta kynningu sem finna má á meðfylgjandi slóð:
https://www.youtube.com/watch?v=VV3LPNpoxZ8

Úrvinnslusjóður heldur utanum átakið og taka fyrirtæki og sveitarfélög þátt í því að koma
söfnun rafeinda- raftækja á framfæri.