Styrkir til úrbóta í umhverfismálum – Ferðamálastofa

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Ferðamálastofa hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2008. Úthlutað verður um 50 milljónum króna og skiptist upphæðin í þrjá meginflokka.


Eitt helsta aðdráttarafl Íslands í hugum ferðamanna, innlendra sem erlendra, er íslensk náttúra. Stefna íslenskra stjórnvalda er að ferðaþjónustan í landinu starfi sem mest eftir hugmyndafræði um sjálfbæra ferðaþjónustu. Liður í því er markviss uppbygging og fyrirbyggjandi aðgerðir til verndunar á íslenskri náttúru.

Samhliða fjölgun ferðafólks og auknu álagi á hina hefðbundnu náttúruskoðunarstaði hafa ferðamálayfirvöld lagt áherslu á að styðja við uppbyggingu á nýjum svæðum, verkefni sem tengjast meira þjónustu og menningu viðkomandi sveitarfélaga. Tilgangurinn með þeirri áherslubreytingu er að draga úr álagi á náttúruna og auka efnahagslegan ábata af ferðaþjónustu.

Aðgengi fyrir alla
Í ár verður áfram lögð áhersla á verkefni sem stuðla að bættu aðgengi allra að áningastöðum. Markmiðið er að auðvelda fólki að skipuleggja ferðalög um landið m.t.t. aðgengis.

Þrír meginflokkar
Sem fyrr segir verður um 50 milljónum króna úthlutað að þessu sinni og skiptist upphæðin í þrjá meginflokka.

1. Styrkir til minni verkefna:
Úthlutað verður til minni verkefna í umhverfismálum. Aðallega verða veittir styrkir til efniskaupa. Hámarksupphæð hvers styrks verður 500 þúsund kr. Til ráðstöfunar eru um 10 milljónir króna.

2. Stærri verkefni á fjölsóttum ferðamannastöðum:
Veittir verða styrkir til stærri verkefna þar sem umsækjendur stýra framkvæmdum og svæðin verða í umsjón eða eigu styrkþega eftir að framkvæmdum lýkur. Þegar til úthlutunar kemur verður stuðst við eftirfarandi vinnureglur:

a) Um er að ræða svæði eða staði sem verulegur fjöldi ferðamanna sækir heim.
b) Megináhersla verður lögð á að styrkja svæði þar sem fullnaðarhönnun og framkvæmdaleifi liggur fyrir. Þó getur hluti af styrkupphæðinni farið til vinnu á deiliskipulagi.
c) Hluti af styrkupphæð Ferðamálarstofu getur farið til verkhönnunar á viðkomandi svæði, þó aldrei meira en sem nemur 25% af styrkupphæð.
d) Ferðamálarstofa áskilur sér rétt til að fara yfir hönnun á viðkomandi svæði ásamt þeim forsendum sem þar liggja að baki.
e) Styrkþegi er ábyrgur fyrir eðlilegu viðhaldi svæðis og mannvirkja er tengjast viðkomandi framkvæmdum.
f) Standi styrkþegi ekki við ákvæði (e) getur ekki orðið af frekari styrkveitingum til viðkomandi fyrr en að því ákvæði uppfylltu.
g) Engu fé verður veitt til styrkþega fyrr en að undangengnum skriflegum samningi milli Ferðamálastofu og styrkþega.

3. Uppbygging á nýjum svæðum:
Veittir verða styrkir til uppbyggingar á nýjum svæðum sem skipulögð hafa verið þannig að þau nýtist ferðamönnum. Þegar til úthlutunar kemur verður stuðst við eftirfarandi vinnureglur:

a) Styrkupphæð getur aldrei orðir hærri en sem nemur 75% af framkvæmdakostnaði.
b) Megináhersla verður lögð á að styrkja svæði þar sem samþykkt deiliskipulag liggur fyrir. Þó getur hluti af styrkupphæðinni farið til vinnu á deiliskipulagi.
c) Hluti af styrkupphæð Ferðamálarstofu getur farið til verkhönnunar á viðkomandi svæði, þó aldrei meira en sem nemur 25% af styrkupphæð.
d) Ferðamálastofa áskilur sér rétt til að fara yfir hönnun á viðkomandi svæði ásamt þeim forsendum sem þar liggja að baki.
e) Styrkþegi er ábyrgur fyrir eðlilegu viðhaldi svæðis og mannvirkja er tengjast viðkomandi framkvæmdum.
f) Standi styrkþegi ekki við ákvæði (e) getur ekki orðið af frekari styrkveitingum til viðkomandi fyrr en að því ákvæði uppfylltu.
g) Engu fé verður veitt til styrkþega fyrr en að undangengnum skriflegum samning milli Ferðamálastofu og styrkþega.

Hverjir geta sótt um?
Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum. Við úthlutun verður m.a. tekið mið af ástandi og álagi svæða og mikilvægi aðgerðanna með tilliti til náttúruverndar. Einnig verður tekið tillit til þess hvort viðkomandi verkefni nýtur þegar fjárstuðnings opinberra aðila. Ekki verður sérstaklega litið til dreifingar verkefna eftir landshlutum.

Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 28. janúar 2008

Meðfylgjandi gögn:
Með öllum umsóknum skal skila inn gögnum er sýna fram á mikilvægi framkvæmdarinnar sem og skriflegt samþykki hlutaðeigandi aðila, svo sem landeigenda, sveitarfélags og umhverfisyfirvalda ef með þarf.

Hvernig er sótt um?
Umsóknir berist á rafrænu umsóknareyðubaði sem aðgengilegt hér á vefnum á meðan umsóknarfrestur er í gildi. Einnig er hægt að skila inn skriflegum umsóknum á eyðublöðum sem fást á skrifstofu Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600 Akureyri.