Málþing um málefni innflytjenda á Vesturlandi – 21.mars

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir málþingi um málefni innflytjenda á Vesturlandi, sem haldið verður í Klifi, Ólafsvík 21.mars næstkomandi.

Málþingið mun hefjast kl. 10:00 og áætlað er að því ljúki kl. 14:00. Sjá nánari dagskrá HÉR

Málþingið er öllum opið og ekkert þátttökugjald

Skráning fer fram á netfangið kristin@ssv.is eða í síma 437 1318

Málefni innflytjenda hafa mikið verið í umræðunni undanfarið þar sem mikil fjölgun hefur verið á innflytjendum, í lok ársins 2000 voru 260 starfandi innflytjendur á Vesturlandi en þeir voru 450 í árslok 2005. Sé litið nánar þá eru nýbúar í lok árs 2005, hlutfallslega flestir á Snæfellsnesi eða 8,6% – því næst er 4,2% á Borgarfjarðarsvæðinu, 3,8% í Dölum og svo 2,4% á Akranessvæði.


Leitast verður við að svara spurningunni: Hvernig hafa sveitarfélög, atvinnurekendur og íbúar á Vesturlandi tekið á móti innflytjendum ?

Markmiðið með málþinginu er m.a. að varpa ljósi á eftirfarandi spurningar:

  • Höfum við tekið vel á móti innflytjendum hér á Vesturlandi?
  • Hvaða upplýsingar eru í boði fyrir innflytjendur?
  • Hvaða upplýsingar vantar?
  • Hver er stefna stjórnvalda varðandi innflytjendur?
  • Hver er upplifun innflytjenda þegar þeir flytja á Vesturland?
  • Hver eru kjara- og atvinnuréttindi innflytjenda?